Tími: 16. október - 17. nóvember 2006.
Markmið: Nemendur *öðlist færni í að kenna kjörsviðsgreinar sínar, *kynnist kennslu og kennsluaðferðum á mið- og unglingastigi grunnskóla (nemendur á yngri barna sviði kenna í yngri bekkjum grunnskóla), *geti skipulagt og metið kennslu út frá markmiðum námskrár, sérkennum nemendahópsins og aðstæðum á hverjum stað, *fái tækifæri til að taka þátt í þróunarstarfi í skólum á kjörsviði sínu eða prófa nýstárlegar hugmyndir og kennsluaðferðir * vinni skipulega úr reynslu sinni í vettvangsnáminu í samráði við viðtökukennara og kjörsviðskennara. Skipulag: Á þessu fimm vikna tímabili eiga nemendur að vera í áheyrn, kennslu og samstarfi við fagstjóra eða kennara í kjörsviðsgreinum sínum. Vettvangsnámið er fullt fimm vikna nám, þar af er æfingakennsla 15 - 20 stundir á viku. Æskilegt er að nemar vinni tveir saman, en annar sé þó ávallt stjórnandi kennslustundar. Kennslan skal einkum vera á mið- og unglingastigi nema hjá nemendum sem eru á yngri barna sviði, þar sem áheyrn og kennsla fer fram á yngsta stigi. Í vettvangsnámi er auk æfingakennslunnar ætlast til viðveru í skólunum þar sem nemendur undirbúa kennsluna og vinna úr henni og kynnast að öðru leyti starfi og sérkennum viðkomandi skóla eftir því sem við á. Jafnframt er gert ráð fyrir því að nemendur kynni sér skipulags- og þróunarstarf í grunnskólum á kjörsviðum sínum í samstarfi við fagstjóra viðtökuskólans ef kostur er, eða í öðrum skólum eftir því sem við á, og fái að taka þátt í slíku starfi. Einnig kemur til álita að nemandi þrói og prófi nýstárleg kennsluverkefni á kjörsviði sínu. Nemandi skilar greinargerð um verkefni sín til kjörsviðskennara í Kennaraháskólanum
samkvæmt nánara samkomulagi. Undirbúningur kennslunnar tengist tilteknu námskeiði eða námskeiðum á kjörsviði hvers og eins. Nemendur hafa sjálfir frumkvæði að upplýsingaöflun og samskiptum við viðtökukennara sína ekki síðar en 1. október. Nemendur undirbúa vettvangstímabilið í samráði við viðtökukennara sína og viðkomandi kjörsviðskennara í Kennaraháskólanum eins og við á á hverju kjörsviði.
20.07.59 Vettvangsnám III, kjörsvið
ECTS: 10 einingar
Kennslumisseri: Haust

Umsjónarmaður: Sigríður Pétursdóttir